Midgard Adventure er stoltur samstarfsaðili Kötlu jarðvangs
Upplifðu ævintýri með Midgard Adventure
Midgard Adventure var stofnað vorið 2010. Markmið fyrirtækisins er að bjóða upp á faglega leiðsögn um þær náttúruperlur og nærsveitir sem umkringja Hvolsvöll, ásamt ferðum um þá einstöku áfangastaði sem Suðurland hefur upp á að bjóða. Áfangastaðir sem þessir bjóða upp á ævintýralega útsýnisstaði og ferðaupplifanir sem seint munu gleymast. Í félagsskap okkar vinalega og sérfróða leiðsögufólks, vonumst við til að ykkar persónulega upplifun ykkar verði einstök og eftirminnileg!
Midgard Adventure er stoltur samstarfsaðili Kötlu jarðvangs sem jarðvangsfyrirtæki og þar með hluti af UNESCO samtökunum. Sjálfbærni, verndun náttúru ásamt áherslum á menningu og samstarf eru nokkur af grunngildum jarðvangsins og erum við stolt að fá Midgard Adventures með okkur í lið!