Niðurstöður
Niðurstöður
Til að skoða breytingar í fjörunni á milli mælinga er breidd fjörunnar í 1 m hæð reiknuð út ásamt rúmmáli sniðsins við hverja mælingu, og þær útkomur bornar saman við fyrri mælingar. Niðurstöðurnar má sjá í töflunum og gröfunum hér til hliðar.
Snið 1 hefur hægt og bítandi verið að bæta við sig í bæði breidd og rúmmáli síðan mælingar hófust, en minnkaði nú aðeins á milli mælinga. Til lengri tíma þá er sniðið að bæta við sig.
Snið 1.5 hefur einnig verið að bæta við sig hægt og bítandi, en hefur þó verið mun óstöðugra en snið 1 og breiddin og rúmmálið styttist og lengist nánast á víxl. Sniðið minnksði örlítið við sig í mælingunni í desember, en til lengri tíma þá er sniðið að bæta við sig.
Snið 2 byrjaði á að minnka nokkuð regluleg en tók síðan mikinn kipp á milli mælinganna í maí og september 2022. Síðan þá hafði breiddin og rúmmálið minnkað aðeins, en tók annan stóran kipp í vexti í mælingunni í maí og hefur fjaran þar haldið áfram að vaxa síðan þá. Til lengri tíma þá er sniðið að bæta við sig.
Snið 3 hefur þróast svipað og snið 2, þ.e.a.s. byrjaði á því að minnka nokkuð stöðugt en óx síðan frá janúar til september 2022, en minnkaði aftur eftir það áður en það jókst síðan aftur. í síðustu tveimur mælingum hefur sniðið minnkað við sig, en til lengri tíma þá er sniðið enn að bæta við sig.
Snið 4 hefur verið tiltölulega óstöðugt og verið að vaxa og minnka til skiptis. Það minnkaði hins vegar nokkuð mikið á milli nóvember 2021 og maí 2022 og hefur sú minnkun haldist í fjörunni að mestu leiti. Milli mælinganna í október og desember 2023 hélst sniðið nánast eins og til lengri tíma þá er sniðið nokkuð stöðugt, og hvorki að minnka né að auka við sig.
Snið 5 hefur verið að minnka hægt og þétt við sig síðan mælingar hófust, en þó má geta þess að fjaran var mjög breið og há þegar mælingar hófust. Sniðið eykur aðeins við sig síðan í síðustu mælingu en til lengri tíma þá er sniðið að minnka við sig.
Nemendur mæla einnig fjörukambinn einu sinni á ári og er það gert til að athuga stöðuleika fjörukambsins í Víkurfjöru, athuga hvort landbrot sé að eiga sér stað eða hvort kamburinn sé stöðugur eða að vaxa fram.
Fjörukamburinn hefur verið mældur þrisvar og má sjá mælingarnar á myndum 5 og 6. Eins og sjá má á mælingunum þá hafði fjörukamburinn í vesturhluta Víkurfjöru, við snið 1 og 1.5, aðeins gengið til baka á milli 2021 og 2022, en er nú byrjaður að ganga fram. Fjaran hér er búin að byggjast upp hratt á undanförnum árum, síðan fyrsti sandfangarinn kom, og er gamli fjörukamburinn kominn það langt inn í land að hann er orðinn stöðugur og sjór nær ekki lengur upp að honum í stormum. Nýr fjörukambur mun á endanum myndast nær sjávarmálinu, en eins og er er gróðurinn enn að færa sig nær sjónum. Mælingin í vesturhluta Víkurfjöru er því í raun mæling á gróðurlínu fjörunnar, en þessar mælingar ásamt mælingunum á sniðunum tveimur munu gefa góða innsýn inn í það hvernig nýr fjörukambur myndast. Það er því gróðurlínan sem hefur hopa aðeins og síðan vaxið, ekki kamburinn, en það er að öllum líkindum vegna hins mikla sandfoks sem var um veturinn fyrir mælinguna árið 2022. Síðan mælingin var gerð í febrúar 2022 þá hefur Landgræðslan hafið uppgræðslu á sandinum fyrir framan fjörukambinn og munu því mælingar nemenda kortleggja útbreiðslu melgresisins sem Landgræðslan sáði og þá í leiðinni sýnt hvort að uppgræðslan hafi virkað eða ekki. Á myndinni má sjá hvar sú girðing er staðsett, og verður forvitnilegt að sjá hvort að melgresið nái að breyða úr sér yfir allt svæðið innan girðingarinnar.
Aðstæðurnar á fjörukambinum milli sandfangarana eru aðeins öðruvísi, en þar er fjörukamburinn í raun gamalt rofabarð í fjörunni sem er nú að hluta hulinn gróðri. Mælingarnar sýna að það hefur átt sér stað landbrot austan við snið 4 og á milli sniða 3 og 4, en það er ekki mikið. Þá hefur einnig verið landbrot og rof við vesturhlutann, en hluti þess er vegna umferðar ferðamanna um fjöruna, sérstaklega við göngustíginn sem liggur frá bílastæðinu við Icewear. Þá má einnig sjá að töluvert landbrot hefur átt sér stað við fjörukambinn við snið 4 síðan loftmyndin var tekin, sem var árið 2020. Það er því ljóst að landbrot getur enn átt sér stað þar, og munu mælingar nemenda fylgjast með því í framtíðinni.